Opens in a new tab

Jafnlaunastefna

Langisjór ehf. greiðir starfsmönnum sínum jöfn laun óháð kyni samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og tryggir að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf samkvæmt Jafnlaunastaðli IST 85:2012.

Mannauðsstjóri Langasjávar ber ábyrgð á jafnlaunastefnu fyrirtækisins og dótturfyrirtækja þess. Framkvæmdastjórar dótturfyrirtækjanna sjá um launaákvarðanir í samstarfi við mannauðsstjóra Langasjávar og að samræmi sé gætt þar við allar ákvarðanatökur.

Mannauðsstjóri yfirfer laun starfsmanna einu sinni á ári með framkvæmdastjórum. Yfirferðin hefur það markmið að tryggja að Langisjór og dótturfyrirtæki fylgi eftir jafnlaunastefnu fyrirtækjanna og að samræmi sé gætt í öllum launagreiðslum.

Allar launaákvarðanir eru byggðar á og í samræmi við kjarasamninga og starfslysingar sem eiga við hvert starf. Starfslysing skal sýna fram á þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi starfs. Mismunandi kröfur starfa fela í sér eftirfarandi þætti, menntun, starfsreynslu, ábyrgð, frumkvæði og vinnuaðstæður en allir þessir þættir hafa áhrif á ákvörðun launa.

Langisjór vill tryggja að starfsmenn fyrirtækisins hafi jöfn tækifæri óháð kyni og að ekki sé til staðar kynbundinn launamunur. Til þess að tryggja að þessum markmiðum sé náð mun Langisjór framkvæma eftirfarandi atriði:

  • Innleiða, skjalfesta og viðhalda vottaðu jafnlaunakerfi byggðu á Jafnlaunastaðli IST 85:2012.
  • Fylgja viðeigandi lögum og reglum sem í gildi eru á hverjum tíma.
  • Framkvæma árlega launagreiningu, þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að skýggja úr skugga um að ekki sé kynbundinn launamunur til staðar.
  • Greina niðurstöður með stjórnendum og kynna þær fyrir starfsmönnum.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
  • Gera innri úttektir og endurskoða stefnu árlega.
  • Kynna og aðgæta jafnréttismenningu á vettvangi fyrirtækjanna.