Sagan
Á hvers manns diski
1944
Þorvaldur Guðmundsson stofnaði sælkeraverslunina Síld og Fisk árið 1944, síðar Ali, við Bergstaðarstræti 37 í Reykjavík. Upphaflega var áhersla einungis lögð á fisk, en fljótlega bættust kjötvörur og kaldir réttir við úrvalið að ósk viðskiptavina. Sællkeraverslunin Síld og Fiskur naut mikilla vinsælda, enda þekkt fyrir gæði og gott hráefni.
Vinsældir kjötvara og kaldra rétta jukust og smám saman og fékk fiskurinn að víkja. Þorvaldur vildi þó halda nafninu Síld og Fiskur en slagorðið „Á hvers manns disk frá Síld og Fisk“ varð landsþekkt.
Nýir tímar á smásölumarkaði
1950
Á sjöunda áratugnum sá Þorvaldur fyrir þær breytingar sem voru að verða á íslenskum smásölumarkaði með tilkomu stórmarkaða. Hann tók þá ákvörðun að hætta verslunarrekstri og lagði þess í stað áherslu á eldi, framleiðslu og sölu- og markaðssetningu kjötafurða. Fljótlega urðu neytendapakkaðar kjötvörur í stórverslunum hluti af daglegu lífi Íslendinga eins og við þekkjum þær í dag.

Stærsta bú landsins
1954
Til að tryggja gott og öruggt hráefni hóf Þorvaldur rekstur svínabús á Minni-Vatnsleysu árið 1954. Búið var byggt upp að danskri og þýskri fyrirmynd og sérfræðingar í svínarækt fengnir til starfa á búinu.

Ali verður til
1971
Kjötframleiðslan var sett á fót við Dalshraun í Hafnarfirði, þar sem höfuðstöðvar Ali eru enn þann dag í dag. Þar varð vörumerkið Ali til, nafn sem dregið er af orðinu eldi. Ali varð fljótt eitt þekktasta vörumerki landsins á kjötvörumarkaði og hefur fylgt íslenskum heimilum síðan

Í stöðugri þróun
Núna
Núverandi eigendur, Langisjór, tekur við rekstrinum á Ali upp úr aldamótum. Mikil straumhvörf urðu á rekstrinum þegar Langisjór festi kaup á Matfugli, með sérhæfingu í eldi og framleiðslu kjúklingakjöts.
Í dag býður Ali fjölbreytt úrval kjötvara, allt frá fersku kjöti yfir í fulleldaðar vörur sem fara nánast beint á diskinn. Vöruúrval Ali eykst stöðugt og tekur breytingum í takt við samfélagið og tækjakost.