Barnvæn og fljótleg máltíð sem öll fjölskyldan getur notið. Ali kjúklingabollur eru fulleldaðar og án ofnæmisvalda, svo það þarf aðeins að hita þær. Með þeim er borið fram brokkólíní, mild avókadódýfa og fersk ber – litríkur diskur sem krakkar elska og tilbúinn á um 15 mínútum.
Meðlætið í uppskriftinni er einnig án helstu ofnæmisvalda. Bollurnar henta líka vel kaldar eða volgar í nestisboxið.
Uppskriftin dugar fyrir 3–4.
