Opens in a new tab
Til bakaLéttir réttir

Brakandi kjúklingalundir

Brakandi kjúklingalundir frá Ali eru stökkar, fulleldaðar og þarf aðeins að hita. Berið þær fram á bretti með þremur sósum – BBQ-sósu, gráðostasósu og hot sauce – ásamt fersku salati, sellerí og kirsuberjatómötum. Einföld og litrík framreiðsla sem allir geta gripið í, tilvalin í veislur, afmæli eða þegar vinirnir koma saman.

Þetta er framreiðslutillaga, svo það er um að gera að laga magnið að fjölda gesta.

Innihaldsefni

Brakandi kjúklingalundir

  • 1 pk. Ali brakandi kjúklingalundir

Sósur

  • BBQ-sósa
  • Gráðostasósa
  • Hot sauce

Meðlæti

  • 1 haus smjörsalat
  • 3–4 sellerístilkar
  • 1 box kirsuberjatómatar
  • Spírur eða ferskar kryddjurtir til skrauts
  • Límóna og sítróna

Aðferð

  1. Hitið kjúklingalundirnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum þar til þær eru heitar í gegn og stökkar.
  2. Á meðan: takið salatblöðin í sundur, skerið sellerí í langa stafi og skolið tómatana.
  3. Hellið sósunum í litlar skálar.
  4. Raðið salati, sellerí og tómötum á bakka eða bretti og leggið kjúklingalundirnar við hliðina. Skreytið með spírum.
  5. Berið fram með sósunum þremur og límónu- og sítrónubátum.

Fæst í verslunum