Opens in a new tab
Til bakaBröns

Bröns heima í stofu

Bröns heima í stofu er notaleg og einföld leið til að gera vel við sig og sína. Beikon- og eggjamuffins, stökkt Ali beikon, croissant með silkiskorinni skinku frá Ali og osti, grísk jógúrtskál og ferskir ávextir – allt tilbúið á um 25 mínútum.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Fyrir 6 manns

Bröns

  • 6-10 x beikon- og eggjamuffins (sjá uppskrift að neðan)
  • 2 pk. Ali beikon
  • 6 x croissant
  • 1 pakki silkiskorin skinka frá Ali
  • 6 sneiðar gouda ostur
  • Grísk jógúrtskál (grísk jógúrt að eigin vali, smá hlynsýróp, musli, kókosflögur, jarðarber, smá suðusúkkulaði)
  • Ávextir í skál (melóna, kiwi, jarðarber, bláber, appelsína)

Beikon- og eggjamuffins

  • 6-10 Ali beikonsneiðar
  • 6-10 egg
  • Matarolíusprey
  • Salt, pipar, chilliflögur

Aðferð

Bröns

  1. Steikið beikonið sem ekki á að nota í beikon- og eggjamuffins þar til það er stökkt.
  2. Útbúið beikon- og eggjamuffins.
  3. Setjið skinku og ost á croissant.
  4. Raðið saman í gríska jógúrtskál.
  5. Skerið niður ávexti.

Beikon- og eggjamuffins

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Leggið beikonsneiðarnar á eldhúspappír á disk og setjið tvær arkir af pappír ofan á.
  3. Setjið í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 2 ½ mínútu og fjarlægið þá pappírinn.
  4. Spreyið muffinsform úr áli að innan með matarolíuspreyi, setjið eina beikonsneið í hring í hvert hólf og brjótið eggið síðan í þá holu. Beikonið á að mynda nokkurs konar vegg í kringum eggið.
  5. Bakið í ofninum í 12-15 mínútur eftir því hversu vel þið viljið hafa eggið steikt.
  6. Losið með beittum hníf allan hringinn og lyftið síðan upp úr forminu, kryddið með salti, pipar og smá chilliflögum.

Fæst í verslunum