Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Chimichurri Cheddar pylsur

Chimichurri Cheddar-pylsurnar eru einföld og bragðmikil lausn á grillið. Þær fara beint á grillið og því þarf lítið annað en gott meðlæti til að fullkomna máltíðina.

Chimichurri-kryddunin gefur pylsunum ferskt og kryddað bragð og cheddar-osturinn mjúka og bragðgóða fyllingu. Grillað grænmeti, ferskar kryddjurtir og köld sósa passa einstaklega vel með og úr verður einföld en virkilega góð sumarmáltíð.

Innihaldsefni

Kryddjurtatoppur

1 búnt fersk steinselja

2 msk. ferskur kóríander

1 hvítlauksrif

50 ml ólífuolía

1 msk. rauðvínsedik

1 tsk. hunang

1/2 tsk. salt

Svartur pipar

Aðferð

Skerið kúrbít, papriku og rauðlauk í grófa bita.

Grillið pylsurnar við meðalhita þar til þær eru heitar í gegn og hafa fengið fallegar grillrendur. Snúið þeim reglulega svo þær grillist jafnt.

Grillið grænmetið þar til það verður mjúkt og fær góða grilláferð.

Útbúið kryddjurtatoppinn með því að saxa steinselju, kóríander og hvítlauk smátt. Hrærið saman við ólífuolíu, rauðvínsedik, hunang, salt og pipar.

Setjið grillaða grænmetið á fat ásamt klettasalati og kirsuberjatómötum.

Skerið pylsurnar niður í bita eða berið þær fram heilar. Setjið kryddjurtatoppinn yfir pylsurnar og grænmetið.

Berið fram með kaldri sósu og pylsubrauði ef vill.

Fæst í verslunum