Ljúffeng og einföld bröns-baka þar sem croissant eru bökuð í eggjablöndu með rjómaosti og cheddar osti og toppuð með stökku Ali beikoni og ferskum graslauk. Fullkomin á brönsborðið um helgar.

Innihaldsefni
- 8 egg
- 6 lítil croissant
- Krydd: salt, pipar, hvítlauksduft og herbes de Provence
- Smá mjólk
- Rjómaostur
- Cheddar ostur
- Ali beikon
- Graslaukur
Aðferð
- Setjið egg, krydd og smá mjólk í eldfast mót og pískið saman.
- Skerið croissant í litla bita og veltið upp úr eggjablöndunni
- Setjið rjómaost og cheddar-ost ofan á
- Inn í ofn við 180 gráður í 30–40 mínútur eða þar til eggin eru elduð í gegn
- Toppið með stökku Ali-beikoni og graslauk.

