Opens in a new tab
Til bakaBarnvænt, Fljótlegt

Djúsí grillsamloka með Ali skinku

Grillsamloka eins og hún gerist best. Stökkt súrdeigsbrauð, extra mikið af Ali skinku, rjómakennd béchamel-sósa og bráðinn íslenskur ostur. Béchamel-sósan gerir samlokuna extra djúsí og hún er tilbúin á um 20 mínútum.

Uppskriftin dugar í 2 samlokur.

Innihaldsefni

Béchamel-sósa

  • 1 msk. smjör
  • 1 msk. hveiti
  • 2 dl mjólk
  • Salt og hvítur pipar
  • Örlítið rifið múskat

Grillsamloka

  • 4 þykkar sneiðar súrdeigsbrauð
  • 1 pk. Ali skinka
  • 150 g Óðals Ísbúi í sneiðum
  • Smjör til að smyrja brauðið
  • Fersk steinselja, smátt söxuð
  • Flögusalt

Aðferð

Béchamel-sósa

  1. Bræðið smjörið í litlum potti við meðalhita, bætið hveitinu út í og hrærið í um 1 mínútu.
  2. Hellið mjólkinni smám saman út í og pískið stöðugt þar til sósan er slétt og þykk, um 3–4 mínútur.
  3. Kryddið með salti, hvítum pipar og múskati og látið kólna aðeins.

Grillsamloka

  1. Smyrjið béchamel-sósu ríflega á eina hlið allra brauðsneiðanna.
  2. Leggið ostsneiðar á tvær sneiðarnar og raðið síðan vel af Ali skinku í fellingum ofan á.
  3. Setjið aðeins meiri ost ofan á skinkuna og lokið með hinum brauðsneiðunum, sósuhliðin snýr inn.
  4. Smyrjið smjöri utan á brauðið.
  5. Grillið í samlokugrilli eða á grillpönnu við meðalhita í 4–5 mínútur, eða þar til brauðið er gullinbrúnt og osturinn bráðinn. Ef notuð er panna, snúið samlokunni við hálfnaða og þrýstið létt á hana.
  6. Skerið samlokurnar í tvennt, stráið steinselju og flögusalti yfir og berið fram strax.

Tillaga að osti: Óðals Ísbúi er mildur og rjómakenndur og bráðnar vel. Ef þið viljið sterkara bragð passar Óðals Tindur vel með skinkunni og béchamel-sósunni.

Fæst í verslunum