Opens in a new tab
Til bakaFljótlegt, Hollara

Flatbrauð með tandoori-kjúklingi og jógúrtsósu

Fljótlegur og ferskur réttur: mjúkt flatbrauð með fulleldaða tandoori-kjúklingnum frá Ali, svalandi jógúrtsósu og stökku grænmeti. Tilbúið á um 15 mínútum.

Innihaldsefni

Flatbrauð

  • Flatbrauð
  • Jógúrtsósa (sjá að neðan)
  • Fulleldaður tandoori-kjúklingur frá Ali
  • Rauðkál
  • Gúrka
  • Pikklaður rauðlaukur
  • Fetaostur
  • Steinselja

Jógúrtsósa

  • 200 g grískt jógúrt
  • 1 msk. lime-safi
  • 1 hvítlauksrif – pressað
  • Salt
  • Steinselja

Aðferð

  1. Jógúrtsósa: Hrærðu saman grísku jógúrti, lime-safa og pressuðu hvítlauksrifi. Saxaðu steinselju og settu út í, smakkaðu til með salti og láttu standa í ísskáp á meðan restin er græjuð.
  2. Grænmetið: Skerðu rauðkálið þunnt og gúrkuna í litla bita. Taktu pikklaða rauðlaukinn upp úr leginum og láttu renna af honum. Myldu fetaostinn og saxaðu steinselju.
  3. Kjúklingurinn: Tandoori-kjúklingurinn frá Ali er fulleldaður, svo hann þarf bara að hitna. Hitaðu hann á pönnu við meðalháan hita í nokkrar mínútur, eða í ofni við 180 °C þar til hann er heitur í gegn. Rífðu eða skerðu hann í munnbita.
  4. Flatbrauðið: Hitaðu flatbrauðið á heitri þurri pönnu, um hálfa til eina mínútu á hvorri hlið, þar til það er mjúkt og með fallegum brúnum rákum.
  5. Samsetning: Smyrðu ríflega af jógúrtsósu á flatbrauðið. Raðaðu kjúklingi í miðjuna og settu rauðkál, gúrku og pikklaðan rauðlauk ofan á. Dreifðu fetaosti og steinselju yfir.
  6. Framreiðsla: Brjóttu brauðið saman eða rúllaðu því upp og stingdu tannstöngli í ef þarf til að halda því saman. Berðu fram með limebátum til að kreista yfir.

Vörur í uppskriftinni

Fæst í verslunum