Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Grísahnakki Louisiana í chili & piparkryddlegi

Grísahnakki í Louisiana chili og piparkryddlegi er heit sumarnýjung á grillið. Kryddlegið gefur kjötinu djúpt og gott bragð með hæfilegum hita, sem passar einstaklega vel með bökuðum kartöflum og góðri fyllingu. Ferskt agúrkusalat setur svo punktinn yfir i-ið og gerir máltíðina enn sumarlegri.

Innihaldsefni

Grísahnakki Louisiana með fylltum kartöflum

1 pakki Ali grísahnakki Louisiana í chili og piparkryddlegi

4 x bakaðar kartöflur

Rifinn Cheddar ostur

Sýrður rjómi

6 sneiðar Ali beikon

Graslaukur (saxaður)

Agúrkusalat (sjá uppskrift að neðan)

Köld sósa

Agúrkusalat

250 g kirsuberjatómatar

1 agúrka

1 rauðlaukur

3 msk. kóríander (saxað)

70 ml virgin ólífuolía

50 ml rauðvínsedik

2 hvítlauksrif

1 tsk. hunangssinnep

1 tsk. salt

Aðferð

Hitið ofninn í 200°C. Bakið kartöflurnar í 50–60 mínútur, eða þar til þær eru mjúkar í gegn.

Takið grísahnakkann úr kæli um 15–20 mínútum áður en hann fer á grillið.

Grillið beikonið þar til það verður stökkt. Saxið það smátt og takið til ásamt rifnum Cheddar osti, sýrðum rjóma og graslauk.

Útbúið agúrkusalatið: Skerið kirsuberjatómata, agúrku og rauðlauk í bita. Saxið kóríander og hvítlauk smátt. Hrærið saman við ólífuolíu, rauðvínsedik, hunangssinnep og salt.

Hitið grillið í meðalhita (um 180–200°C). Grillið grísahnakkann í 5–6 mínútur á hvorri hlið, eða þar til hann er fallega brúnaður. Kjötið er fulleldað þegar kjarnhiti hefur náð 68°C. Leyfið því að hvíla í 3–5 mínútur áður en það er skorið.

Skerið ofan í kartöflurnar og losið aðeins um innihaldið með gaffli. Fyllið þær með sýrðum rjóma, Cheddar osti, beikoni og graslauk.

Berið grísahnakkann fram með fylltum bökuðum kartöflum, fersku agúrkusalati og kaldri sósu.

Fæst í verslunum