Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Grísakótilettur í kryddlegi grillmeistarans

Langar þig að prufa eitthvað nýtt og spennandi á grillið? Þá mælum við með Ali grísakótilettum í kryddlegi grillmeistarans.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Tilvalið er að bera grísakótilettur í kryddlegi grillmeistarans fram með mexíkóostasósu, bakaðri kartöflu og sumarlegu salati.

Aðferð

Fjarlægið umbúðirnar og penslið afganginn af BBQ sósunni á kótiletturnar eftir smekk.

Setjið kótiletturnar á heitt grillið (200-250°C). Grillið kótiletturnar í 3-4 mín á hverri hlið eða þar til að kjarnhiti hefur minnst náð 67°C. Leyfið kjötinu að hvíla aðeins og útkoman verður ótrúlega safarík og bragðgóð.

Meðlæti Mexikó ostasósa: Rífið niður mexíkó kryddostinn og pískið saman við rúmlega 250 ml. af rjóma á miðlungs hita þar til hann er bráðinn.

Bætið 250 ml. af rjóma saman við ásamt klípu af salti, 1 tsk soyasósu og leyfið að malla við mjög lágan hita á meðan þið útbúið annað.

Fæst í verslunum