Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Grísakótilettur með krönsí kartöflusalati

Prófaðu að breyta til og bjóða upp á þetta girnilega kartöflusalat sem meðlæti. Það passar einstaklega vel með grísakótilettum eða pylsum.
Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir

Innihaldsefni

Krönsí kartöflusalat

1 kg litlar kartöflur

160 g grísk jógúrt

80 g sýrður rjómi

80 g majónes

½ sítróna (safinn)

2 tsk. dijon sinnep

3 hvítlauksgeirar

½ agúrka

½ rauðlaukur

Ólífuolía

Salt, pipar, hvítlauksduft

 

Grísakótilettur og annað meðlæti

2 pakkar hunangsmarineraðar grísakótilettur frá Ali

1 pakki Cheddar-Jalapeno pylsur frá Ali

1 pakki beikonpylsur frá Ali

1 pakki beikon frá Ali

Ferskur aspas

Maísstönglar

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar og leyfið þeim síðan alveg að þorna
Hitið ofninn í 210°C.

Penslið ofnskúffu með matarolíu og hellið kartöflunum í skúffuna.

Kremjið þær niður með kartöflustappara/gaffli.

Penslið þær með ólífuolíu á efri hliðinni líka og kryddið vel með salti, pipar og hvítlauksdufti.

Bakið í ofninum í 45-60 mínútur eða þar til þær verða mjög stökkar.

Á meðan kartöflurnar eru í ofninum má píska saman gríska jógúrt, sýrðan rjóma, majónes, sítrónusafa, dijon sinnep og rifin hvítlauksrif. Smakka síðan til með kryddum.

Skerið fræin úr agúrkunni og saxið hana næst smátt niður ásamt rauðlauknum og bætið í jógúrtblönduna. Geymið í kæli þar til kartöflurnar eru tilbúnar.

Leyfið kartöflunum að kólna í um 5 mínútur áður en þið blandið þeim saman við jógúrtblönduna. Ef þær eru stórar má skera þær aðeins niður fyrst.

Næst skal vefja aspas með beikoni og bakið í ofni/á grillinu þar til beikonið verður stökkt.

Grillið grísakótilettur og pylsur og sjóðið maís.

Berið fram með krönsí kartöflusalati.

Fæst í verslunum