Opens in a new tab
Til bakaHátíðarmatur

Hamborgarhryggur með appelsínu- og möndlugljáa

Ali hamborgarhryggur er á veisluborði margra landsmanna yfir hátíðirnar. Hann er algjör klassík en það er gaman að prófa nýjan gljáa og meðlæti með honum. Hér er hryggurinn gljáður með appelsínu, hunangi og dijon sinnepi og þakinn stökkum möndluflögum. Með honum eru bornar fram rjómalöguð sveppasósa, brúnaðar kartöflur og ferskt mandarínusalat – góð tilbreyting frá waldorfsalatinu.

Uppskriftin dugar fyrir um 6 manns.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Hamborgarhryggur og gljái

  • Um 3 kg Ali hamborgarhryggur
  • 1 l vatn
  • 180 ml appelsínusafi
  • 200 g púðursykur
  • 1 msk. dijon sinnep
  • 120 g hunang
  • 70 g möndluflögur

Sveppasósa

  • 250 g sveppir
  • 40 g smjör
  • 170 ml vatn
  • 500 ml rjómi
  • 2 msk. kjötkraftur
  • 3 msk. gljái
  • 50 ml rauðvín
  • Salt, pipar, hvítlauksduft og cayenne pipar
  • Maizenamjöl

Brúnaðar kartöflur

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 200 g sykur
  • 50 g smjör

Mandarínusalat

  • 3 lúkur spínat
  • 3 lúkur klettasalat
  • ½ pera
  • 1 mandarína
  • ½ granatepli
  • 40 g pekanhnetur
  • Fetaostur

Aðferð

Hamborgarhryggur og gljái

  1. Byrjið á því að útbúa gljáann með því að hita saman appelsínusafa, púðursykur, sinnep og hunang þar til sykurinn er uppleystur.
  2. Hellið 1 l af vatni í ofnskúffu neðst í ofninum og stillið hitann á 150°C.
  3. Setjið hamborgarhrygginn á ofngrind og penslið einu sinni með gljáanum. Geymið 3 msk. af gljáanum fyrir sósuna og restina til að pensla hrygginn á meðan á eldun stendur.
  4. Stingið kjöthitamæli inn í miðjan hrygginn og komið grindinni fyrir í ofninum fyrir ofan skúffuna með vatninu. Penslið hrygginn 1–2 sinnum á meðan. Án kjöthitamælis er gott að miða við 45 mínútur til klukkustund á hvert kíló.
  5. Eldið þar til kjarnhiti sýnir um 55°C og hækkið þá hitann í 200°C.
  6. Blandið möndluflögunum saman við restina af gljáanum, setjið yfir hrygginn og eldið þar til kjarnhiti sýnir 67°C. Takið hrygginn út og leyfið honum að hvíla í að minnsta kosti 15 mínútur áður en hann er skorinn í sneiðar.

Sveppasósa

  1. Skerið sveppina niður, steikið upp úr smjöri og kryddið eftir smekk.
  2. Steikið þar til þeir mýkjast og bætið þá vatni, rjóma, krafti og gljáa á pönnuna. Hitið að suðu, lækkið síðan vel hitann og leyfið sósunni að malla á meðan hryggurinn er í ofninum.
  3. Smakkið til og bætið við krafti eða kryddum eftir smekk. Í lokin má þykkja sósuna með Maizenamjöli og bæta rauðvíninu saman við.

Brúnaðar kartöflur

  1. Sigtið allan vökva frá kartöflunum og hitið sykurinn á pönnu.
  2. Hristið pönnuna reglulega og þegar sykurinn fer að bráðna má bæta smjörinu saman við, lækka hitann og setja kartöflurnar á pönnuna.
  3. Veltið kartöflunum upp úr sykurbráðinni með sleikju eða sleif og leyfið þeim að malla þar til þær eru heitar í gegn.

Mandarínusalat

  1. Skerið peruna niður, losið mandarínuna í sundur, náið fræjunum úr granateplinu og saxið hneturnar smátt.
  2. Blandið öllu saman í skál og setjið fetaost saman við eftir smekk.

Fæst í verslunum