Ali hamborgarhryggur er ómissandi á hátíðarborðið. Hér er hann gljáður með púðursykri, rauðvínsediki og appelsínu og borinn fram með léttara meðlæti en þessu klassíska – smjörsteiktum kartöflum með hvítlauk og timían og frískandi salati með eplum, mangó, möndlum og dökku súkkulaði.
Fullkomin útfærsla fyrir páskana eða hvaða hátíðarstund sem er. Uppskriftin dugar fyrir 5–7 manns.
Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.
