Ali hamborgarhryggur hefur verið fastur liður í hátíðarhefðum fjölmargra íslenskra fjölskyldna í yfir 75 ár og ekki að ástæðulausu. Mikil natni er lögð við framleiðsluna, hryggurinn er saltaður og léttreyktur yfir beykispæni.
Það er einfalt að matreiða ómótstæðilegan Ali hamborgarhrygg. Hér fyrir neðan finnur þú einföld matreiðslumyndbönd fyrir hátíðarmatinn.
Innihaldsefni
Ali Hamborgarhryggur
Klassískur gljái
300 gr. púðursykur
100 gr. tómatpúrra
100 gr. sinnep
Kartöflur
Ferskt Rauðkál
Aðferð
Ali hamborgarhryggur eldunartillögur:
Skref 1 – Hamborgarhryggur í ofni
Stillið ofninn á 150 °C. Hellið 1 lítra af vatni í ofnskúffu eða steikarpott og setjið hrygginn á ofngrind fyrir ofan skúffuna/eða í pottinn. Komið fyrir neðarlega í ofninum. Eldið hrygginn þangað til kjarnhiti hefur náð 63-64°C. Gera má ráð fyrir 2-3 klst. í þetta ferli þar sem hitinn er ekki hár. Sjá skref 2.
Skref 1 – Soðinn Hamborgarhryggur á gamla mátann
Setjið hrygginn í pott með köldu vatni og leyfið suðunni að koma rólega upp. Þegar að suðan er komin upp er hryggurinn látinn sjóða þar til kjarnhiti hefur náð 63-64 °C. Sjá skref 2.
Skref 2 – Fulleldaður hryggur með gljáa
Smyrjið næst hrygginn með sykurgljáa og eldið hann í 180°C heitum ofni í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til að kjarnhiti hefur náð 68°C. Gætið þess að gljáinn brenni ekki. Leyfið hryggnum að hvíla í 10 mínútur áður en hann er borinn fram.
Klassískur gljái
Hrærið saman hráefnum í potti á vægum hita
Hér má sjá hvernig er hægt að matreiða brúnaðar kartöflur