Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri

Hunangsmarineruðu grísakótiletturnar frá Ali eru fyrir löngu orðnar klassískar á grillið þegar slá á í gegn. Þessi nýjung er með kryddsmjöri. Hunangið gefur kótilettunum léttan sætukeim á meðan kryddsmjörið gerir þær safaríkar og bragðmiklar.

Grillaður maís, fersk sítróna og köld sósa passa einstaklega vel með og gera réttinn að einfaldri en virkilega góðri sumarmáltíð.

Innihaldsefni

Hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri með grilluðum maís og fylltum kartöflum

1 pakki Ali hunangsmarineraðar grísakótilettur í kryddsmjöri

4 x bakaðar kartöflur

4 maískólfar

1 sítróna

Rifinn Cheddar ostur

Sýrður rjómi

6 sneiðar Ali beikon

Graslaukur (saxaður)

Ferskt salat

Köld sósa

Aðferð

Bakið kartöflurnar þar til þær eru mjúkar í gegn.

Grillið beikonið þar til það verður stökkt. Saxið það smátt og takið til ásamt rifnum Cheddar osti, sýrðum rjóma og söxuðum graslauk.

Skerið ofan í kartöflurnar og losið aðeins um innihaldið með gaffli. Fyllið þær með sýrðum rjóma, Cheddar osti, beikoni og graslauk.

Grillið maískólfana þar til þeir fá fallegar grillrendur. Skerið sítrónuna í tvennt og grillið hana stutt á skurðfletinum.

Grillið grísakótiletturnar við meðalhita í um 3–4 mínútur á hvorri hlið, þar til þær eru fallega brúnaðar. Passið að snúa þeim reglulega svo hunangsmarineringin brenni ekki. Kótiletturnar eru fulleldaðar þegar kjarnhiti hefur náð 68°C.

Leyfið kótilettunum að hvíla í nokkrar mínútur áður en þær eru bornar fram.

Berið grísakótiletturnar fram með fylltum bökuðum kartöflum, grilluðum maís, grillaðri sítrónu, fersku salati og kaldri sósu.

Fæst í verslunum