Opens in a new tab
Til bakaHátíðarmatur

Kalkúnabringa á þakkargjörðardaginn

Kalkúnabringa er frábær kostur fyrir þá sem vilja hátíðlega máltíð án þess að elda heilan kalkún. Sous Vide kalkúnabringan frá Ali er forelduð svo eldamennskan er einföld og erfitt að klúðra henni. Borin fram með granatepla Waldorfsalati, kalkúnasósu og brúnuðum kartöflum.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Fyrir um 6 manns

Kalkúnabringa

  • 1 x Sous Vide kalkúnabringa frá Ali
  • Smjör til steikingar

Granatepla Waldorfsalat

  • 2 gul epli
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1 granatepli
  • 40 g saxaðar pekanhnetur
  • 1 dós sýrður rjómi (180 g)
  • 200 ml þeyttur rjómi
  • 1 msk. sykur

Kalkúnasósa

  • 1 rauðlaukur
  • 3 hvítlauksrif (rifin)
  • 1 msk. saxað timian
  • 1 msk. hvítvínsedik
  • 400 ml kalkúnasoð (úr fernu eða útbúið með krafti)
  • 300 ml rjómi
  • 1 msk. púðursykur
  • 4 msk. maizena sósujafnari
  • Salt, pipar, cheyenne pipar
  • Ólífuolía
  • Smjör

Brúnaðar kartöflur

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 200 g sykur
  • 50 g smjör

Aðferð

Kalkúnabringa

  1. Látið heitt vatn renna í vaskinn, takið pappann af pakkningunni og leggið bringuna í pokanum ofan í vatnið. Leyfið henni að standa þar í 15 mínútur, takið hana síðan upp og úr plastinu.
  2. Bræðið væna klípu af smjöri á pönnu og brúnið bringuna á öllum hliðum áður en hún er skorin í sneiðar.

Granatepla Waldorfsalat

  1. Flysjið eplin, skerið í litla bita og kreistið sítrónusafann yfir.
  2. Losið fræin úr granateplinu og bætið þeim út í ásamt pekanhnetum og restinni af hráefnunum.
  3. Blandið öllu varlega saman með sleikju og geymið í kæli fram að notkun.

Kalkúnasósa

  1. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og steikið við meðalhita upp úr smjöri og olíu ásamt hvítlauk og timian þar til hann mýkist.
  2. Hellið hvítvínsedikinu saman við og leyfið því að gufa upp. Bætið þá soði og rjóma út í, náið upp suðu og lækkið síðan hitann.
  3. Bætið sósujafnara við og kryddið eftir smekk.

Brúnaðar kartöflur

  1. Sigtið allan vökva frá kartöflunum og hitið sykurinn á pönnu.
  2. Hristið pönnuna reglulega og þegar sykurinn fer að bráðna er smjörinu bætt út í. Lækkið hitann og setjið kartöflurnar á pönnuna.
  3. Veltið kartöflunum upp úr sykurbráðinni og leyfið þeim að malla þar til þær eru heitar í gegn.

Fæst í verslunum