Ali Sous Vide kalkúnabringa er fulleldaður hátíðarmatur sem tekur aðeins örfáar mínútur að hita upp. Bringan er hituð í heitu vatni og svo steikt stutt upp úr smjöri svo hún fái fallega gyllta skorpu, safarík og meyr í gegn.
Með bringunni er tilvalið að bera fram rjómalagað sætkartöflugratín með hvítlauk og rósmarín og fyllta sveppi með rjómaosti, parmesan og stökku Ali beikoni. Hátíðleg máltíð sem er einföld í undirbúningi.
Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.






