Opens in a new tab
Til bakaGrillið, Hollara

Kjúklingalundir Black Garlic

Kjúklingalundir Black Garlic eru einföld og bragðgóð lausn á grillið. Lundirnar koma marineraðar og tilbúnar í eldun, svo þú þarft ekki að útbúa eigin marineringu. Það er bara að skella þeim beint á grillið.

Black Garlic-marineringin gefur kjúklingnum djúpt og milt sætt bragð sem passar einstaklega vel með ferskum kryddjurtum, stökkum lauk og kaldri sósu. Rétturinn er léttur og sumarlegur og hentar vel sem aðalréttur.

Innihaldsefni

Kjúklingalundir Black Garlic með kryddjurtatoppi

1 pakki Ali kjúklingalundir Black Garlic

Fersk steinselja

Ferskur kóríander

Stökkur laukur

Fetaostur

1 sítróna

Klettasalat

Kirsuberjatómatar

Agúrka

Köld sósa

Grillspjót

Aðferð

Leggið grillspjótin í bleyti í nokkrar mínútur ef notuð eru tréspjót.

Þræðið kjúklingalundirnar upp á grillspjót eða grillið þær beint á grindinni.

Grillið kjúklingalundirnar við meðalhita þar til þær eru fallega brúnaðar og eldaðar í gegn. Snúið þeim reglulega svo þær grillist jafnt.

Saxið steinselju og kóríander og blandið saman við stökkum lauk og mulinn fetaost.

Skerið sítrónuna í tvennt og grillið hana stutt á skurðfletinum þar til hún fær fallegar grillrendur.

Setjið kryddjurtatoppinn yfir kjúklingalundirnar þegar þær eru komnar af grillinu.

Berið kjúklingalundirnar fram með klettasalati, kirsuberjatómötum, agúrku, grillaðri sítrónu og kaldri sósu.

Fæst í verslunum