Opens in a new tab
Til bakaGrillið

Kjúklingalundir Rodizio

Kjúklingalundir Rodizio eru frábær kostur þegar máltíðin á að vera einföld, fljótleg og full af grillbragði. Lundirnar eru tilbúnar beint á grillið og því þarf ekki að útbúa eigin marineringu, heldur bara þræða þær á spjót og leyfa grillinu að sjá um rest.

Rodizio kryddunin gefur kjúklingnum suðurameríska grillstemningu sem passar einstaklega vel með grilluðu grænmeti, ferskri chimichurri sósu og góðu salati. Þetta er léttur og sumarlegur réttur sem hentar vel bæði í kvöldmat og sem hluti af stærri grillveislu.

Innihaldsefni

Kjúklingalundir Rodizio á grillspjóti með grilluðu grænmeti

1 pakki Ali kjúklingalundir Rodizio

1 rauð paprika

1 gul paprika

1 kúrbítur

1 rauðlaukur

1 sítróna

Ferskt salat

Köld sósa

Grillspjót

Chimichurri sósa

1 búnt fersk steinselja

2 msk. ferskt kóríander

2 hvítlauksrif

1/2 rauður chili

100 ml ólífuolía

2 msk. rauðvínsedik

1 tsk. hunang

1/2 tsk. salt

Svartur pipar

Aðferð

Leggið grillspjótin í bleyti í nokkrar mínútur ef notuð eru tréspjót.

Þræðið kjúklingalundirnar upp á grillspjót. Skerið papriku, kúrbít og rauðlauk í grófa bita.

Útbúið chimichurri sósuna með því að saxa steinselju, kóríander, hvítlauk og chili smátt. Hrærið saman við ólífuolíu, rauðvínsedik, hunang, salt og pipar.

Grillið kjúklingaspjótin við meðalhita þar til þau eru fallega brúnuð og elduð í gegn. Snúið þeim reglulega svo þau grillist jafnt.

Grillið grænmetið þar til það fær fallegar grillrendur og verður mjúkt, en heldur samt smá biti.

Skerið sítrónuna í tvennt og grillið hana stutt á skurðfletinum.

Berið kjúklingalundirnar fram með grilluðu grænmeti, fersku salati, grillaðri sítrónu og chimichurri sósu.

Fæst í verslunum