Stökkt og ferskt kjúklingasalat með asískum blæ. Ali Rodizio lærakjöt er fulleldað og þarf aðeins að steikja stutta stund, svo salatið er tilbúið á um 25 mínútum. Hvítkál, rauðkál, gulrætur, edamame baunir og ristaðar núðlur með kasjúhnetum, allt blandað saman við bragðmikla sesamdressingu.
Uppskriftin dugar fyrir um 4 manns.
Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.
