Opens in a new tab
Til bakaFljótlegt, Hollara

Kjúklingataco með límónusósu

Ferskt og bragðgott kjúklingataco sem er tilbúið á um 15 mínútum. Ali salt og pipar kjúklingastrimlar eru fulleldaðir og þarf aðeins að hita, svo það eina sem þarf að gera er að skera grænmetið og hræra í sósuna. Stökkt rauðkál, ferskur chili, kóríander og rjómakennd límónusósa gera þetta að fullkomnum kvöldmat á virkum degi.

Uppskriftin dugar í 8 taco, fyrir 3–4 manns.

Innihaldsefni

Kjúklingataco

  • 1 pk. Ali salt og pipar kjúklingastrimlar
  • 8 litlar tortillakökur
  • 150 g rauðkál
  • Handfylli af salatblöðum
  • 1–2 rauð chili
  • Ferskur kóríander
  • 2 límónur
  • 1 msk. ólífuolía

Límónusósa

  • 100 g sýrður rjómi
  • 2 msk. majónes
  • Safi og fínrifinn börkur af ½ límónu
  • 1 hvítlauksrif (rifið)
  • Salt og pipar

Aðferð

Límónusósa

  1. Hrærið saman sýrðan rjóma, majónes, límónusafa, límónubörk og hvítlauk. Kryddið með salti og pipar og geymið í kæli á meðan annað er undirbúið.

Kjúklingataco

  1. Skerið rauðkálið í þunna strimla, kreistið yfir það safa úr ½ límónu og blandið saman.
  2. Skerið chili í þunnar sneiðar og saxið kóríander gróft. Skerið restina af límónunum í báta.
  3. Hitið ólífuolíu á pönnu og hitið kjúklingastrimlana í nokkrar mínútur þar til þeir eru heitir í gegn.
  4. Hitið tortillakökurnar stutta stund á þurri pönnu eða í ofni.
  5. Setjið salat og rauðkál í hverja köku, síðan kjúkling, og toppið með chili og kóríander.
  6. Sprautið límónusósunni yfir og berið fram með límónubátum.

Fæst í verslunum