Lúxus nesti sem gerir hádegið að tilhlökkunarefni. Ristað súrdeigsbrauð með Ali skinku, mjúkum camembert osti, safaríkum tómötum og fersku salati með léttri hunangssinnepssósu sem bindur allt saman. Einföld samloka sem er tilbúin á um 10 mínútum.
Uppskriftin dugar í 2 samlokur.
