Marineraðar grísalundir með hvítlauk og kryddjurtum eru fljótleg og bragðgóð leið að góðri grillmáltíð. Lundirnar koma fullmarineraðar, svo það eina sem þarf að gera er að kveikja á grillinu og skella þeim á.
Hvítlaukurinn og kryddjurtirnar gefa kjötinu ferskt og ljúffengt bragð sem nýtur sín vel með grillaðri sítrónu, fersku salati og kaldri sósu. Rétturinn er léttur og sumarlegur, einfaldur að elda og fallegur á borði.
