Opens in a new tab
Til bakaGrillið, Hollara

Marineraðar kjúklingabringur og leggir með fylltum kartöflum

Marineraðar bringur og leggir einfalda eldamennskuna til muna. Það þarf ekki að útbúa eigin marineringu, heldur er kjúklingnum bara skellt beint á grillið! Bakaðar kartöflur með góðri fyllingu smellpassa svo með kjúklingnum og agúrkusalatið er frábær viðbót fyrir þá sem vilja gera máltíðina enn betri.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Marineraðir kjúklingabitar með fylltum kartöflum

1 pakki Ali hvítlauksmarineraðar kjúklingabringur
1 pakki Ali kjúklingaleggir í hvítlauks- og kryddjurtamarineringu
4 x bakaðar kartöflur
Rifinn Cheddar ostur
Sýrður rjómi
6 sneiðar Ali beikon
Graslaukur (saxaður)
Agúrkusalat (sjá uppskrift að neðan)
Köld sósa

 

Agúrkusalat

250 g kirsuberjatómatar
1 agúrka
1 rauðlaukur
3 msk. kóríander (saxað)
70 ml virgin ólífuolía
50 ml rauðvínsedik
2 hvítlauksrif
1 tsk. hunangssinnep
1 tsk. salt

Aðferð

Skerið tómata, agúrku og lauk niður og setjið í skál ásamt kóríander.

Hrærið ólífuolíu, ediki, rifnum hvítlauksrifjum, sinnepi og salti saman í skál og hellið yfir salatið, blandið saman.

Geymið agúrkusalatið í kæli.

Bakið kartöflurnar og grillið beikonið, saxið það síðan smátt niður og takið til ásamt rifnum cheddar osti, sýrðum rjóma og söxuðum graslauk þar sem þetta er allt fyllingin í kartöflurnar. Gott er að skera aðeins úr kartöflunni til að meira góðgæti komist fyrir og auðveldara verði að blanda öllu saman.

Grillið bringur og leggi, berið síðan fram með fylltum bökuðum kartöflum, agúrkusalati og kaldri sósu.

Fæst í verslunum