Opens in a new tab
Til bakaBarnvænt, Nesti

Pizzasnúningar

Pizzasnúningar með Ali skinku og osti eru fullkomnir í nestisboxið, sem millibiti eða í afmælið. Mjúkt gerdeig með pizzasósu, skinku, osti og oregano sem er snúið upp á og bakað þar til það verður gyllt og girnilegt.

Uppskriftin gerir um 35-40 pizzusnúninga og þeir geymast vel í frysti, svo það er tilvalið að baka stóran skammt og eiga til.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Pizzasnúningar – um 35-40 stk.

  • 100 g smjör
  • 500 ml mjólk
  • 1 pk. þurrger (um 12 g)
  • 830 g hveiti
  • 60 g sykur
  • ½ tsk. salt
  • 16 Ali skinkusneiðar
  • Um 5 lúkur rifinn ostur
  • Um 6 msk. pizzasósa
  • Oregano krydd
  • 1 x egg

Aðferð

  1. Bræðið smjör í potti og hitið mjólkina síðan útí þar til blandan er volg, takið þá af hellunni og bætið þurrgerinu saman við, leyfið að standa í um 5 mínútur á meðan annað er undirbúið.
  2. Setjið hveiti, sykur og salt í hrærivélarskál með króknum og blandið saman.
  3. Hellið gerblöndunni varlega saman við og hnoðið vel saman.
  4. Setjið deigkúluna í olíuborna stóra skál, plast yfir og leyfið að hefast í um 45 mínútur.
  5. Skiptið deiginu í tvo hluta og þrýstið/fletjið út í um 40×40 cm.
  6. Smyrjið þunnu lagi af pizzasósu yfir allt saman, raðið skinkusneiðum á helminginn ásamt osti og kryddi.
  7. Flettið þá helminginn sem er ekki með skinku og osti yfir hinn og þrýstið aðeins niður og jafnið deig.
  8. Skerið í um 2 cm þykkar ræmur, snúið uppá og raðið á bökunarplötu, leyfið að hefast að nýju í um 20 mínútur.
  9. Hitið ofninn á meðan í 190°C, penslið deigið með pískuðu eggi og bakið í um 20 mínútur eða þar til vefjurnar verða vel gylltar.

Fæst í verslunum