Opens in a new tab
Til bakaFljótlegt

Pulled Pork borgarar

Litlir og safaríkir pulled pork borgarar með stökku Ali beikoni, fersku grænmeti og hamborgarasósu. Ali Pulled Pork er fulleldað og þarf aðeins að hita, svo máltíðin er klár á um 15 mínútum. Gott er að bera borgarana fram með maís og sætkartöflufrönskum.

Uppskriftin dugar í um 12 litla hamborgara, fyrir 4–6 manns.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Pulled Pork borgarar

  • 1 pk. Ali Pulled Pork (500 g)
  • 12 lítil hamborgarabrauð/dinner rolls
  • 12 sneiðar Ali beikon
  • Hamborgarasósa
  • Kál
  • 12 tómatsneiðar
  • Rauðlaukur
  • Kóríander (ef vill)

Aðferð

Pulled Pork borgarar

  1. Hitið pulled pork í potti eða á pönnu við vægan hita þar til það er heitt í gegn og undirbúið annað á meðan.
  2. Steikið beikonið þar til það er stökkt og leggið til hliðar.
  3. Skerið niður grænmetið og hitið brauðin.
  4. Raðið að lokum öllu saman og njótið.
  5. Gott er að bera borgarana fram með maís og sætkartöflufrönskum.

Fæst í verslunum