Opens in a new tab
Til bakaHátíðarmatur

Saltkjöt og baunir

Saltkjöt og baunir, túkall! Saltkjöt og baunir er ómissandi á Sprengidaginn og ótrúlega einfalt að elda. Baunasúpan er soðin með Ali beikoni, lauk, gulrótum og rófum og borin fram með söltuðu kjöti og kartöflum.

Uppskriftin dugar fyrir um 6 manns.

Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Innihaldsefni

Saltkjöt og baunir

  • 2 kg saltkjöt
  • 5 sneiðar Ali beikon
  • 1 laukur
  • 400 g gular baunir
  • 2 l vatn
  • 1 grænmetisteningur/kraftur
  • 600 g gulrófur
  • 600 g gulrætur
  • 600 g kartöflur
  • Smjör til steikingar

Aðferð

Saltkjöt og baunir

  1. Byrjið á því að saxa lauk og skera beikon í litla bita og steikið upp úr smjöri þar til laukurinn mýkist.
  2. Bætið þá baununum í pottinn ásamt vatni og grænmetiskrafti og hrærið vel saman. Náið upp suðunni, lækkið síðan hitann og leyfið að sjóða í um klukkustund. Veiðið froðuna ofan af fyrstu 15–20 mínúturnar.
  3. Setjið saltkjötið í annan pott og náið upp suðunni, lækkið hitann og leyfið að malla í um 1,5 klukkustund. Veiðið froðuna af í byrjun suðu.
  4. Flysjið á meðan rófur og gulrætur, skerið í munnstóra bita og sjóðið kartöflurnar í sér potti.
  5. Bætið rófum og gulrótum út í baunasúpuna þegar hún hefur mallað í um klukkustund og sjóðið í 30–40 mínútur í viðbót eða þar til grænmetið mýkist. Smakkið súpuna til og bætið við grænmetiskrafti eða salti eftir þörfum.
  6. Berið baunasúpuna fram með saltkjöti og kartöflum.

Fæst í verslunum