Opens in a new tab
Til bakaBarnvænt, Fljótlegt, Hollara

Tacos með kjúklingi og gulum baunum

Tacos með Ali Rodizio kjúklingalærakjöti og gulum baunum er fljótlegur og ferskur réttur sem er tilbúinn á um 15 mínútum. Kjúklingurinn er steiktur með lauk og gulum baunum og borinn fram í heitum tortilla kökum með stökku romaine salati.

Toppað með ferskri kóríander- og lime sósu og nóg af kóríander. Uppskriftin dugar í 8-10 litlar tortilla kökur.
Uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir

Innihaldsefni

Kjúklingatacos – 8-10 litlar tortilla kökur

  • 1 x pakki Ali Rodizio kjúklingalærakjöt
  • 8-10 litlar tortilla kökur
  • 1 dós gular baunir (um 400 g)
  • 2 x laukur
  • Romaine salat
  • Kóríander
  • Salt og pipar
  • Ólífuolía til steikingar
  • Kóríander- og lime sósa (sjá uppskrift að neðan)

Kóríander- og lime sósa

  • 150 g grísk jógúrt
  • 100 g sýrður rjómi
  • 2 hvítlauksrif (rifin)
  • 1 lime (safi + börkur)
  • 1 búnt kóríander (saxað smátt)
  • Salt og pipar

Aðferð

Kjúklingatacos

  1. Skerið laukinn og kjúklinginn niður.
  2. Steikið lauk upp úr ólífuolíu þar til hann fer að mýkjast, saltið og piprið eftir smekk.
  3. Bætið þá gulum baunum og niðurskornum Rodizio kjúklingi á pönnuna og steikið þar til allt er orðið heitt í gegn.
  4. Hitið tortilla kökur, skerið niður salat og raðið salati og kjúklingablöndu á kökuna. Toppið með kóríandersósu og ferskum kóríander.

Kóríander- og lime sósa

  1. Pískið allt saman í skál og smakkið til með salti og pipar.

Fæst í verslunum