Yuzu Jalapeño Mango pylsur eru fyrir þá sem vilja eitthvað aðeins öðruvísi á grillið. Japanski sítrusávöxturinn yuzu gefur ferskan keim, mangóið milda sætu og jalapeño hæfilegan hita. Útkoman er pylsa sem kemur skemmtilega á óvart.
Pylsurnar fara beint á grillið og með fersku kryddjurtasalsa og grilluðu grænmeti verður til létt og litrík sumarmáltíð sem gaman er að bera fram.
