Skip to content

Fáðu fagfólk Ali til að aðstoða þig með veitingarnar á fermingardaginn. Veislupakkarnir frá Ali innihalda úrval af hefðbundnum veislu- og fingramat. Veitingarnar eru afhentar eldaðar í loftskiptum umbúðum. Einfalt að hita og framreiða á veisluborðið. Lágmarkspöntun á veislupakka er fyrir 40 manns. Síðasta fermingarveislan er afgreidd 2. júní 2024. 

Vantar þig nánari upplýsingar eða ráðgjöf?
Hafðu samband í gegnum hoskuldur@ali.is eða í síma 662 6263

Veislupakki 1

Verð á mann 1.990 kr. Lágmarkspöntun 40 manns.

  •  Ali hamborgarhryggur, sneiddur
  • Ali hægeldaðar kalkúnabringur í smjöri og kryddjurtum, ósneiddar.
  • Rjómalöguð villisveppasósa.
  • Fersk salatblanda.
  • Kryddlegnar smælki kartöflur (eldaðar).

Veislupakki 2

Verð á mann 2.390 kr. Lágmarkspöntun 40 manns.

  • Ali hamborgarhryggur, sneiddur.
  • Ali hægeldaðar kalkúnabringur í smjöri og kryddjurtum, ósneiddar.
  • Rjómalöguð villisveppasósa.
  • Brakandi kjúklingalundir
  • Brakandi stökkir blómkálsbitar.
  • Hvítlaukssósa
  • Fersk salatblanda.
  • Kryddlegnar smælki kartöflur (eldaðar).

Leiðbeiningar

Við mælum með að bera kjötið fram kalt en hita sósuna, kartöflurnar, lundirnar og blómkálið.

  • Veitingarnar koma í loftskiptum umbúðum. Hamborgarahryggurinn kemur fallega skorinn í sneiðar tilbúnar á veislubakkann.

  • Kalkúnabringurnar koma hægeldaðar í heilum bringum og við mælum með að þær séu skornar í þunnar fallegar sneiðar beint á veislubakkann.

  • Best er að hita upp sósuna hægt og rólega þar til hún hefur náð suðumarki.

  • Kryddlegnu kartöflurnar eru fulleldaðar en best að setja þær í eldfast mót og baka þær við 200 gráður í ofni í 20 mínútur.

  • Brakandi blómkálið og lundirnar eru fulleldaðar en henta frábærlega til upphitunar í airfryer í 10-12 mínútur á 200 gráðu hita – Einnig hægt að setja í eldfast mót í 15 mínútur og hita við 200 gráðu í ofni.  

Gott að hafa í huga við talningu gesta

1-5 ára þarf ekki að telja með

6-12 ára má gera ráð fyrir hálfum skammti

13 ára og eldri má gera ráð fyrir fullorðins skammti

Fáðu ráðgjöf fyrir þína fermingarveislu

  • DD dash MM dash YYYY
Play Video