Hægeldaði sous vide kjúklingurinn frá Ali er fljótlegur og bragðgóður kostur sem er þægilegur í alla kjúklingarétti heita sem kalda.
Ali Sous vide kjúklingur er próteinríkur og einstaklega safaríkur þar sem hann er hægeldaður í eigin safa í lofttæmdum umbúðum við lágan hita sem tryggir rétta og nákvæma eldun.
Ef þú vilt hita hann getur þú lagt hann í umbúðunum í heitt vatn eða hitað í örbylgjuofni. Einnig er hægt að hita hann á pönnu, í airfryer eða á grilli. Gott er að nota safann af kjúklingnum í heitar eða kaldar sósur.
Ali Sous vide kjúklingur eru fáanlegur í Bónus, Krónunni, Fjarðarkaup, Hagkaup, Nettó og öðrum völdum verslunum.