Nýtt frá Ali. Marineraður heill kjúklingur er tilvalinn á dögum sem hugurinn girnist eitthvað ótrúlega gott með lítilli fyrirhöfn.
Marineraði kjúklingurinn er tilbúinn beint í ofninn, airfryerinn eða á grillið og er útkoman einstaklega safarík og bragðgóð.
Hvort sem þig vantar hugmynd að nýjum rétt fyrir fjölskylduna eða næsta matarboð þá er þessi uppskrift sem er unnin í samstarfi með Berglindi Hreiðarsdóttur frábær.
Marineraður kjúklingur í potti
Fyrir 3-4 manns
1 stk. marineraður heill kjúklingur frá Ali Um 300 g litlar kartöflur/stærri skornar til helminga Um 450 g sætkaröflur í sneiðum 1 ½ rauðlaukur í sneiðum 200 g rósakál 3 heilir hvítlaukar ½ sítróna Kjúklingasósa (sjá uppskrift að neðan) Ólífuolía 2 msk. hvítlauksblanda (krydd)
Aðferð:
Kveikjið á ofninum og hitið hann í 180°C áður en potturinn eða eldfasta mótið er sett inn.
Setjið allt grænmetið í steikarpott, hellið ólífuolíu og hvítlauksblöndu yfir og blandið saman.
Búið til smá pláss í miðjunni fyrir kjúklinginn, leggið hann þar ofan í og eldið með lokið á í 55-75 mínútur, takið lokið þá af og eldið í 15 mínútur í viðbót.
Gott soð myndast í botninum á pottinum sem hægt er að nota í stað sósu en ef þið kjósið brúna kjúklingasósu í staðinn má útbúa hana á meðan kjúklingurinn eldast.